- Skráningarblað 2012
- Handbók 2011
- Þjónusta
- Fréttir
- Gististaðir í Eyjum
- Gjöld 2012
- Mótsstjórn
- Myndir
- Shellmótskerfið
- Shellmótslagið
- Skjáhvílur
Shellmótslagið verður flutt við setningu Shellmótsins á fimmtudagskvöldi og aftur á kvöldvökunni á föstudagskvöld í íþróttahöllinni, einnig á lokahátíðinni á laugardagskvöldi.
Lærið lag og texta áður en komið er til Eyja og takið myndarlega undir þegar lagið er flutt.
Fararstjóri fær einhverju foreldri það hlutverk að kenna öllum lag og texta !
Sá sigrar sem tekur þátt
Til Eyja öll við höldum
í ævintýraleit.
Við búum í skólum og tjöldum
leikum á grænum reit.
Við förum á völlinn, spörum ei köllinn
við erum ein sigursveit.
Í fótboltann við spörkum
daginn út og inn.
Þess á milli við örkum
um bæinn minn og þinn.
Við munum þora og mörkin skora
sláin, stöngin inn.
Viðlag :
Á Shellmót í Eyjum
við stefnum hvert ár,
þar setjum við markið hátt.
Saman segjum
og stöndum klár,
sá sigrar sem tekur þátt.
_____________________________________________
Samið árið 1996
Lag Geir Reynisson
Texti Geir Reynisson og Bjarni Ólafur Guðmundsson
Útsetning Pálmi Sigurhjartarson
Upptaka Stúdíó Stöðin
Söngur Jórunn Lilja Jónasdóttir
Undirleikur Sniglabandið.






