Fréttir

19. desember 2011

Víti í Vestmannaeyjum

Okkur þótti mjög gaman að sjá bók eftir Gunnar Helgason, Víti í Vestmannaeyjum í jólabókaflóðinu. Bókin var auðvitað lesin spjaldanna á milli og eins fengum við stráka á Shellmótsaldrinum til að renna yfir bókina og er það samdóma álit að þetta sé hin skemmtilegasta lesning.  Til þess að vera alveg viss um að þetta væri skemmtileg saga til aflestnar fyrir bæði stráka og stelpur, þá fengum við eina 9 ára stelpu sem hatar fótbolta til að lesa bókina yfir.  Henni fannst hún æðisleg og eftir lesturinn er hún sannfærð um að Þróttur sé besta félagið í fótbolta !  Nánar um bókina

Til baka