Fréttir

04. júní 2010

Útsýnisferðir og skutl upp á land

Rib-safari býður upp á nýja möguleika í útsýnisferðum fyrir fullorðna um Vestmannaeyjar.
Markmiðið er að ferðamenn geti notið þeirrar náttúruperlu sem Heimaey og aðrar eyjar í kring eru.
 
Eins og nafnið felur í sér erum við með harðbotna slöngubát og getum við tekið 10 farþega í hverri ferð ásamt 2 stjórnendum.

Fyllsta öryggis er gætt og uppfyllum við í öllu reglur og öryggisbúnað sem krafist er af Siglingastofnun Íslands.
Stjórnendur hjá Ribsafari hafa allir tilskilin leyfi til að stjórna bátnum af kröfu Siglingastofnunar Íslands.
 
Um borð er lífbátur, fullkomin siglingatæki, talstöð og neyðarstöð.
Allir farþegar fá flotbúning og björgunarvesti sem þeir klæðast á meðan á ferð stendur.
Báturinn sem er af gerðinni Techno Marine 10 er 10 metra langur og 3.15 metra breiður hann er knúinn áfram af 315 hp innanborðs dieselvél og ganghraði er 35 mílur. 
 
Sjá nánar á www.ribsafari.is
 
símar 8611810 +  8922581
 
Til baka