- Skráningarblað 2012
- Handbók 2012
- Þjónusta
- Fréttir
- Gististaðir í Eyjum
- Gjöld 2012
- Mótsstjórn
- Myndir
- Shellmótskerfið 2012
- Shellmótslagið
- Skjáhvílur
25. febrúar 2011
Shellmótið 2011 - við erum komnir í gang
Shellmótsnefnd er komin á fullt að skipuleggja mótið í sumar. Eftirfarandi hefur verið ákveðið :
1. Staðfestingargjald pr. lið er kr. 15.000 og greiðist í síðasta lagi 10. maí.
2. Þátttökugjald pr. Þátttakanda, leikmann, þjálfarara, fararstjóra er kr. 15.000 á mann.
3. Miðað er við að Landeyjahöfn verði í lagi og allir þátttakendur komi með Herjólfi um og upp úr hádegi á miðvikudag. Þannig að allir verði komnir til Eyja í kvöldmat um og upp úr kl. 17.30
4. Reynt verður að haga dagskrá leikja á laugardegi þannig að sem flestir þátttakendur á Shellmóti komist heim með Herjólfi eftir mót á laugardagskvöldi.
5. Ekki verður boðið upp á morgunmat á sunndegi á vegum Shellmótsnefndar.
6. Handbók Shellmótsins 2011 er í vinnslu og verður sett á netið þegar hún liggur fyrir. Fram að þeim tíma verður fólk að notast við handbókina frá 2010, sem gefur ágæta vísbendingu um mótið, en mótið 2011 tekur einhverjum breytingum.






