Fréttir

22. maí 2010

Shellmótið verður í Eyjum

Það er alveg skýrt að Shellmótið verður úti í Eyjum á auglýstum dögum. Allur undirbúningur gengur samkvæmt áætlun og allt verður tilbúið þegar mótið hefst.
Eðlilega eru miklar vangaveltur hvort Shellmótið verði haldið vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Það eru engar pælingar í gangi að færa þetta stóra mót upp á land, hvað svo sem á gengur. Eins og allir vita, sem hafa komið á Shellmót, þá er þetta mót miklu meira en bara fótbolti og ekki mögulegt að færa þessa upplifun upp á land.
Að sjálfsögðu er mótsnefnd búin að setja upp áætlun hvernig bregðast skuli við, ef öskufall verður í Eyjum. Sú áætlun gengur út á að allir séu í öruggu skjóli, liði vel og mótið haldi áfram.
Vestmannaeyjabær og Vestmannaeyingar eru dyggir bakhjarlar Shellmótsins og við látum allt ganga upp.

Þessar myndir voru teknar í Eyjum föstudaginn 21. maí 2010 :
 
 
 
 
Til baka