Fréttir

28. nóvember 2011

Mótsgjald á Shellmótinu 2012

Shellmótsnefnd hefur ákveðið að skráningargjald fyrir hvert lið verði kr. 15.500 og þátttökugjald fyrir hvern þátttakanda, leikmenn, þjálfara og fararstjóra verði kr. 15.500

Greiða skal skráningargjald fyrir hvert lið í síðasta lagi 5. maí

Greiða skal þátttökugjöld fyrir alla þátttakendur í síðasta lagi 5. júní


Shellmótsnefnd hefur ákveðið að skráningargjald fyrir hvert lið verði kr. 15.500 og þátttökugjald fyrir hvern þátttakanda, leikmenn, þjálfara og fararstjóra verði kr. 15.500

Greiða skal skráningargjald fyrir hvert lið í síðasta lagi 5. maí

Greiða skal þátttökugjöld fyrir alla þátttakendur í síðasta lagi 5. Júní

Að fenginni reynslu, þá fer Shellmótsnefnd fram á að greiðslur staðfestingar- og þátttökugjalda verði fyrr en verið hefur. Ástæða þessa er að félög hafa verið að skrá fleiri þátttakendur en skila sér á mótið. Stundum hafa afföllin verið svo mikil að félag hefur þurft að draga lið til baka úr mótinu á síðustu stundu og þá of stuttur tími til að bjóða öðru félagi að bæta við liði.  Auk þess gerir það okkur erfitt fyrir að vita ekki réttan fjölda í hópum fyrr en á síðustu stundu, þegar verið er að raða í gistingu.

Til baka