Fréttir

06. október 2009

Handbók Shellmótsins 2010 í vinnslu

Shellmótsnefnd verður þess vör á hverju móti að það er fullt af óskrifuðum reglum og venjum í kringum mótið.
Shellmótsnefnd er því að safna öllum reglum, leiðbeiningum og ábendingum  vegna Shellmótsins í eitt skjal til að auðvelda öllum þátttakendum að undirbúa sig fyrir hvert mót og eiga betra með að átta sig á framkvæmd hvers móts.
 
Það er ósk okkar að fararstjórar, þjálfarar og foreldrar sendi okkur upplýsingar um hvernig hópar undirbúa sig, leiðbeiningar sem foreldrum eru sendir og svo framvegis.
 
Einnig vilum við fá upplýsingar um það sem vantar, óljóst og svo að sjálfsögðu hvað megi betur fara hjá okkur.
 
Vinsamlegast sendið upplýsingar á js@islandia.is
 
 Handbókin verður svo birt hér á heimasíðunni.

Til baka