- Skráningarblað 2012
- Handbók 2011
- Þjónusta
- Fréttir
- Gististaðir í Eyjum
- Gjöld 2012
- Mótsstjórn
- Myndir
- Shellmótskerfið
- Shellmótslagið
- Skjáhvílur
Fréttir
13. janúar 2010
Áætlaðar komur og brottfarir félaga með Herjólfi
Meðfylgjandi eru drög að ferðaáætlun hvers félags með Herjólfi.
Hvert félag ( drengir, þjálfarar og fararstjórar þeirra) hafa fengið um það bil 40-50 pláss í hvora ferð og því sem samsvarar einum Econoline og einum fólksbíl. Gott er að fá nokkuð rétta farþegatölu sem fyrst.
Eins og fram kemur eru þetta drög, en hafa þó tilhneigingu til að breytast fremur lítið. Bókun í skipið gæti helst breyst, ef einhver félög ákveða að fara með flugi, þá gæti þurft að raða hópum öðruvísi í ferðir með Herjólfi til að nýta plássið betur.
Ef félag ákveður að koma og/eða fara með flugi, þá eru það vinsamlegt tilmæli að láta okkur vita strax, þannig að unnt sé að bregðast við óskum félaga um viðbótarpláss í Herjólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Friðþjófsson, sími 860 2207, einarf@ismennt.is
|
Koma til Eyja.
Miðvikudagur 23. júní.
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 12.00
komið til Eyja kl. 14.45
|
Brottför frá Eyjum.
Sunnudagur 27. júní.
Brottför frá Eyjum kl. 16.00
komið til Þorlákshafnar kl. 18.45
|
Afturelding, Álftanes, Breiðablik, Fjölnir, Fram, Fylkir, Grótta, Haukar, ÍR, KR, Stjarnan, Víkingur, Þróttur R.
|
Koma til Eyja.
Miðvikudagur 23 júní.
Brottför frá Þorlákshöfn Kl.19.30.
Komið til Eyja kl. 22.15
|
Brottför frá Eyjum.
Sunnudagur 27. júní kl.8.15.
Komið til Þorlákshafnar kl. 11.45
|
Grindavík, FH, HK, ÍA. KA, Keflavík, Njarðvík, Reynir Sandgerði, Selfoss, Valur, Víðir Völsungur, og Þór






