- Skráningarblað 2012
- Handbók 2011
- Þjónusta
- Fréttir
- Gististaðir í Eyjum
- Gjöld 2012
- Mótsstjórn
- Myndir
- Shellmótskerfið
- Shellmótslagið
- Skjáhvílur
28. nóvember 2011
104 lið á Shellmótinu 2012
Shellmótsnefnd hefur ákveðið að bjóða 104 liðum þátttöku á Shellmótinu 2012, sama fjölda og árið 2011. Að venju hafa þau félög sem tóku þátt í mótinu 2011 forgangsrétt að mótinu með ákveðinn liðafjölda.
Nokkrar fyrirspurnir hafa komið frá félögum sem . .
Shellmótsnefnd hefur ákveðið að bjóða 104 liðum þátttöku á Shellmótinu 2012, sama fjölda og árið 2011. Að venju hafa þau félög sem tóku þátt í mótinu 2011 forgangsrétt að mótinu með ákveðinn liðafjölda.
Nokkrar fyrirspurnir hafa komið frá félögum sem ekki voru á síðasta móti. Það er ekki hægt að svara þessum félögum fyrr en búið er að kanna áhuga og fjölda liða sem eru væntanleg frá félögum sem voru á mótinu 2011.
Félög geta sent óskir um væntanlegan liðafjölda á shellmot@shellmot.is, taka þarf fram nafn, gsm, netfang forráðamanns og aðalþjálfara flokksins, auk fjölda leikmanna sem eru að æfa í flokknum núna.
Við viljum fá þessar upplýsingar fyrir 10.des. 2011 til þess að átta okkur á hvort hægt sé að bjóða liðum á biðlista þátttöku í næsta móti.
Vinsamlegast sendið spurningar og fyrirspurnir shellmot@shellmot.is.






